Húfan Mosi er prjónuð með afar mjúku Gilitrutt Tvíbandi úr hreinni íslenskri lambsull, í stíl við Mosa vettlingana. Húfan er prjónuð í hring og er mótuð með úrtökum.
Gilitrutt Tvíband er einstaklega fallegt og mjúkt tvínnað band úr hreinni íslenskri lambsull, sköpuð af Hélène Magnússonar. Bandið er unnið með ást og umhyggju til að gera það allra besta út íslensku ullinni. Það er spunnið í verksmiðju á Ítalíu úr hágæða íslenskri lambsull sérvalin af Hélène. Gilitrutt er einstök og falleg afurð sem nýtist vel í vettlinga frá Grýlu Collection sem og í sjalaprjón, auk þess hentar það vel í fíngerðar peysur, barnapeysur og húfur.
Um hönnuðinn
Hélène Magnússon finnst gaman að bregða á leik með íslenskar prjónahefðir. Hún vann árum saman sem fjallaleiðsögumaður meðfram því að læra textíl- og fatahönnun við Listaháskóla Íslands. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum hönnunarsýningum á Íslandi og erlendis og verk eftir hana hafa verið birt í virtum prjónatímaritum svo og bókum. Hún rekur vefsíðuna prjónakerling.is og bíður einnig upp á spennandi göngu- og prjónaferðir fyrir erlent jafnt sem íslenskt prjónafólk. Ferðirnar eru óviðjafnanlegt tækifæri til þess að kynnast ólíkum prjónaaðferðum í hópi fólks frá mismunandi löndum þar sem prjónið verður aðal tungumálið!
Stærðir: 3 stærðir S(M,L) fyrir höfuðmál u.þ.b.46(50,56) cm. Hægt er að fá fleiri stærðir eða meira lafandi (slouchy) húfu með því að skipta um prjónastærð.
Prjónfesta: 10×10 cm = 30 L og 36 umf með tvíbandaprjóni á prjón 3 mm.
Garn: Gilitrutt Tvíband frá Hélène Magnússon, hrein ný ull, 100% sérvalin íslensk lambsull, fíngerttvinnað band, 25 g / dokka = u.þ.b 112 m. Aðallitur #Moss Green, aukalitur 1 #Raven Black, aukalitur 2 #Anis Green, 1 dokka hver.
Prjónar: hringprjónar 3 mm (notað er Töfralykkju-aðferðin) eða sokkaprjónar. Sannreynið prjónfestu og skiptið um prjónastærð ef þörf krefur.
Annað: prjónamerki, nál.
Aðferð: Bolur og ermar eru prjónuð slétt í hring. Við handveg eru lykkjur af ermum og bol sameinaðar á einn prjón og axlastykkið er prjónað í hring med tvíbandaprjóni. Lykkjur í handvegi eru settar á geymslunál eða hjálparband og síðan lykkjaðar saman. Peysan er klippt í miðjunni að framan.
Kit: Pakkinn inniheldur garnið en ekki prjóna eða önnur áhöld. Pakkin inniheldur ekki heldur uppskriftin sem þarf að kaupa sér. Sendingarkostnaður er ekki innifalinn í verði.
Sending: sjá hér
.