Gilipeysa er pínulítil lopapeysa fyrir allra minnstu krílin, frá þriggja mánaða upp í fjögurra ára. Hún er prjónuð með sérlega mjúku Gilitrutt Tvíbandinu úr sérvalinni íslenskri lambsull en er að öðru leyti hefðbundin íslensk lopapeysa.
Gilitrutt Tvíband er einstaklega fallegt og mjúkt tvínnað band úr hreinni íslenskri lambsull, sköpuð af Hélène Magnússonar. Bandið er unnið með ást og umhyggju til að gera það allra besta út íslensku ullinni. Það er spunnið í verksmiðju á Ítalíu úr hágæða íslenskri lambsull sérvalin af Hélène. Gilitrutt er einstök og falleg afurð sem nýtist vel í vettlinga frá Grýlu Collection sem og í sjalaprjón, auk þess hentar það vel í fíngerðar peysur, barnapeysur og húfur.
Um hönnuðinn
Hélène Magnússon finnst gaman að bregða á leik með íslenskar prjónahefðir. Hún vann árum saman sem fjallaleiðsögumaður meðfram því að læra textíl- og fatahönnun við Listaháskóla Íslands. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum hönnunarsýningum á Íslandi og erlendis og verk eftir hana hafa verið birt í virtum prjónatímaritum svo og bókum. Hún rekur vefsíðuna prjónakerling.is og bíður einnig upp á spennandi göngu- og prjónaferðir fyrir erlent jafnt sem íslenskt prjónafólk. Ferðirnar eru óviðjafnanlegt tækifæri til þess að kynnast ólíkum prjónaaðferðum í hópi fólks frá mismunandi löndum þar sem prjónið verður aðal tungumálið!
Stærðir: 3-6(6-9, 9-12, 12-18) mánaða, 2,3,4 ára gömul börn. Peysan á myndunum er í stærð 3-6 mánaða.
Tilbúin mál
Yfirvídd: 45.5(48.5,51.5,54) 57,60,63 cm
Lengd bols að handvegi : 14(16,17,19)21,22,24 cm
Lengd axlarstykkis:8.5(9.5,10.5,10.5)11,11.5,11.5 cm Hálsmál: 30.5(31.5,33,34) 35.5,36.5,38 cm
Ermalengd að handvegi: 16(19,20,21)22,23,24 cm Upphandleggur: 19(19,21,21)21,22.5,22.5 cm
Prjónfesta: 10 cm = 24 L og 30 umf umf í sléttu prjóni á prjón nr 3,5. Skiptið um prjónastærð ef þarf, til að ná réttri prjónfestu.
Garn: Gilitrutt Tvíband frá Hélène Magnússon, hrein ný ull, 100% sérvalin íslensk lambsull, fíngert tvinnað band, 25 g / dokka = u.þ.b 112 m.
Litur A: sauðgrár (Natural Grey), 2(2,3,3)3,4,4 dokkur
Litur B: mórauður (Natural Brown), 1 dokka
Litur C: hvítur (White), 1 dokka
Prjónar: hringprjónar nr 3 og 3,5. Töfralykkju-aðferðin (e. Magic Loop) er notuð til að prjóna ermar og háls en einnig má nota sokkaprjóna.
Heklunál nr 3
Annað: stoppunál, prjónamerki, 4 geymslunálar
3 eða 4 meðalstórar tölur
Aðferð: Bolur og ermar eru prjónuð slétt í hring. Við handveg eru lykkjur af ermum og bol sameinaðar á einn prjón og axlastykkið er prjónað í hring med tvíbandaprjóni. Lykkjur í handvegi eru settar á geymslunál eða hjálparband og síðan lykkjaðar saman. Peysan er klippt í miðjunni að framan.
Uppskrift: hún kemur sem PDF niðurhal en er ekki send í pósti.
Errata: engan villu fannst.