DESIGN: Halla Ben.
BAND:
Allar einrúm E tegundir.
Á myndinni er peysan prjónuð í lit 1002. Stærðir XS (S) og M – 200 g / (L) XL – 250 g.
PRJÓNAR:
Hringprjónn nr. 4 og nr. 4,5, báðir 80 cm langir
Sokkaprjónar nr. 4 og 4,5. Kaðlaprjónn.
PRJÓNFESTA, slétt prjón:
10 cm = 19 L / 10 cm = 24 umf
STÆRÐIR: XS (S) M (L) XL
Hálf yfirvídd: 41 (44) 47 (50) 53 cm
Sídd frá handvegi: 39 (42) 45 (48) 51 cm
Ermalengd: 47 (47) 48 (50) 51 cm
MYNSTUR, perluprjón:
1. umf: *1 sl, 1 br*. Endurtakið *-* út prjóninn.
2. umf: *1 br, 1 sl*. Endurtakið *-* út prjóninn.
Endurtakið umf 1 og 2.
• Bolur og ermar eru prjónuð í hring upp að handvegi.
• Við handveg eru lykkjur af ermum og bol sameinaðar á einn hringprjón og axlastykkið prjónað.
• Umferð byrjar í vinstri hlið á bol, á samskeytum bols og vinstri ermar vinstra megin á baki, fyrir framan úrtöku á kaðli (munstur 1).
• Peysan er prjónuð slétt.
• Stroff neðan á bol og ermum auk hálslíningar, er prjónað með perluprjóni.
• Úrtaka er prjónuð eſtir mynstri 1 og mynstri 2.
Uppskrift: hún kemur sem PDF niðurhal en er ekki send í pósti.
Errata: enga villu fannst.