Vinsamlegast athugið: aðeins er hægt að kaupa áskriftir klúbbs staklega. Ef þú vilt kaupa aðra hluti úr búðinni, eða kaupa aðra klúbbáskrift sem gjöf, vinsamlegast leggðu aðra pöntun.
Hvað er í bókinni
Miðsokkar, háir sokkar, hálfsokkar, allir sokkarnir úr bókinni, 17 talsins, koma í mörgum stærðum og nota alls kyns aðferð (tvíbandaprjón, smá blúndu og kaðla, óprjónaðar lykkjur). Þeir eru prjónaðir að ofan eða frá tánum, með ansi mörgum afbrigðum á hælum og tám. Fela sumir í sér nýjar aðferðir en eru aðrir einfaldari.
Af 17 uppskriftum í bókinni, eru 14 glænýjar og 3 endurútgefnar: Mosi sokkar sem kom út fyrr á þessu ári, Barði sem birtist í Icelandic yarn Club 1 og var eingöngu hægt að fá þar, þar til nú, og DK útgáfa af íslenskum hásokkum sem birtust í bókinni Knitting socks from around the world 2011.
Sokkarnir í bókinni eru allir prjónaðir með Kötlu Sokkabandinu, einstöku DK/sport bandi úr íslenskri lambsull sem var skapað af Hélène. Ef þú vilt nota annað svipað garn fyrir flesta sokkana er prjónfestan 26 L og 32 umf yfir 10 cm í sléttu prjóni. Prjónfestan náðist með 2,5 mm prjónum en sumar prjónakonur sem prukeyrðu uppskritirnar þurftu að fara niður í 2 mm eða upp í 2,75 eða 3 mm.
Hvernig klúbburinn virkar
Sokkar frá Íslandi Klúbburinn hefst fimmtudaginn 1. október 2020 og stendur yfir í 14 vikur til fimmtudagsins 31. desember 2020. Þú getur gengið í klúbbinn hvenær sem er, svo framarlega sem það er fyrir lokadag klúbbsins, þann 31. desember 2020.
Klúbburinn er skemmtilegt umhverfi til að vera í og prjóna öll saman en það er auðvitað engin skylda að prjóna alla sokka í bókinni, eða jafnvel að prjóna neina!! Það er heldur enginn pressa að ljúka neinu. Þú tekur bara það sem þú vilt úr klúbbnum á þínum eigin hraða! Hægt er að „hittast“ á netinu bæði á Facebook og á Ravelry: gakktu strax í Facebook hópinn mínn og / eða Ravelry hópinn mínn
Á hverjum fimmtudegi, liklega í loks dagsins, mun þú fá ráfrænt (PDF) eina eða tvær uppskriftir á íslensku inn á Prjónakerlingar reikninginn þinn, stundum mun einnig ritgerð eða lítil saga fylgja. Oft verður líka kennsluefni sem sýnir nokkrar af þeim aðferðum sem notaðar eru í uppskriftunum. PDF skjölunum verður öllum safnað í ZIP-skrá sem þú þarft því að sækja aftur í Prjónakerlingar reikningin hverri viku í hvert skipti sem bætist við usppkrift.
Ef þú vilt einnig geyma prjónauppskriftirnar inn á Ravelry bókasafninu þínu, bætu við notandanafninu í nótur við afgreiðslu eða sendu tölvupóst.
Að lokum klúbbsins færðu fallega bók (sen rafbók-PDF og/eða útprentaða eftir því sem þú velur) sem safnar saman öllum uppskriftunum, ritgerðunum og sögunum.
Þú getur valið á milli mismunandi aðildar valkosta:
- eingöngu stafræn útgáfa (rafbók) + 10% afsláttarkóði á Kötlu sokkabandi og Kötlu Gjafapoka
- Útprentuð bók + stafræn útgáfa + 10% afsláttarkóði á Kötlu sokkabandi og Kötlu Gjafapoka
- Útprentuð bók + stafræn útgáfa + Garn: 1 Kötlu Gjafapoki (11 hespur í öllum litum, taska og smá gjöf) + 2 auka Kötlu hespur (svört og hvít) + 10% afsláttarkóði á öllum vörum á prjonakerling.is (nema á ferðum og klúbbnum)
Sendingarkostnaður:
- Ef þú velur eingöngu stafrænu útgáfuna er auðvitað enginn flutningakostnaður til að senda rafbókina.
- Ef þú velur útprentaða bók + stafræna útgáfu, er sendingarkostnaður bókarinnar, sem þú færð síðan í lok klúbbsins, innifallinn en passaðu að velja rétt flutningssvæði þegar þú kaupir þann möguleika
– ÍSLAND: hvar sem er á landinu
– INNAN EVRÓPU nær til allra landa innan EES, það er allra landa í ESB og EFTA (Liechtenstein, Noregur og Sviss).Í
– UTAN EVRÓPU nær til allra staða utan ÍSLANDS og EVRÓPU (til dæmis til Kanada, Bandaríkjanna, Nýja Sjálands, Ástralíu, o.s.frv.) - Ef þú velur útprentaða bók + stafræna útgáfu + garn, borgarðu sendingarkostnað fyrir garnið strax en sending bókarinnar í lok klúbbsins er ókeypis. Kostnaðurinn fyrir garnið fer eftir því hvar þú ert staddur í heiminum og er í samræmi við flutningsaðferðina sem þú valdir (Posturinn eða DHL Express Worldwide). Þú getur einnig valið um að sækja hjá okkur.
Gott að vita
Afslættirnir eiga við um vörurnar á prjonakerling.is og þú færð klúbbafsláttarkóðann þinn sendan í tölvupósti þegar þú gerist aðili (níðurhaldu Sokkar-frá-Íslandi PDF, opnaðu ZIP-skrá og leitaðu Velkomin PDF. Einnig geturðu leitað undir Níðurhald í Prjónakerlingar reikningin þín). Þú getur notað afsláttinn þinn eins sjaldan eða oft og þú vilt, allan tímann sem klúbburinn stendur yfir, það er, til loks ársins 2020. Þú getur gerst áskrifandi að klúbbnum hvenær sem er, svo framarlega sem það er fyrir 31. desember, og þá geturðu notið alla þeirra afslátta.
Ef þú vilt uppfæra aðild þína er það mögulegt: sendu okkur tölvupóst! Niðurfærsla er þó því miður ekki í boði.
Athugaðu að Katla-gjafapokinn inniheldur ekki nóg til að prjóna öll 17 sokkapörin í bókinni (auðvitað!), en vonandi nærðu samt að prjóna margar eftirlætis uppskriftirnar þínar úr öllum litunum. Ég bætti við tveimur hespum, einni hvítri og einni svartri svo möguleikarnir yrðu breiðari. Ein 100g hespa dugar venjulega til að prjóna par af hálfsokkum í einum lit í stærð Medium.
Þetta er klúbbur: með því að skrá þig í hann skuldbindur þú þig. Endurgreiðslur og afpantanir eru ekki mögulegar, með fyrirvara um lögbundin réttindi þín. Vinsamlegast skoðaðu skilmálar og skilyrði okkar á heimasíðunni.
Ef þú hefur einhverjar spurningar, skaltu ekki hika við að senda okkur tölvupóst!