íslenskir vettlingar & Litir náttúrunnar
Það eru margar mismunandi gerðir af vettlingum á Íslandi, sumar einkennandi fyrir ákveðin svæði á landinu eða jafnvel sumar fjölskyldur. Vestfirskir laufaviðarvettlingar þekkjast strax á litríkum laufaviðarmunstrum í úlnliðinum og minni munstrum á hendi og þumli. Þeir voru sparivettlingar prjónaðir með afar fíngerðu heimaspunnu tvíbandi.
Vettlingarnir eru prjónaðir í hring með Grýlu Tvíbandi og mótaðir með úrtökum. Merkt er fyrir þumli með aukabandi og síðan er hann einnig prjónaður í hring. Vettlingarnir eru frekar langir til að veita hlýju á úlnliðunum.
Grýla Tvíband er fallegt og fíngert band úr hreinni íslenskri ull, þróað af Hélène Magnússon. Tvíbandið er spunnið úr sérvalinni hágæða íslenskri ull í verksmiðju á Ítalíu.
Grýla Tvíband er mjög sterkt, en þó sérlega létt og hlýtt, og nýtist einstaklega vel til dæmis í fíngerðum vettlingum. Eftir þvott mýkist ullin og fær að njóta sín til fulls.
Um hönnuðinn: Hélène Magnússon finnst gaman að bregða á leik með íslenskar prjónahefðir. Hún vann árum saman sem fjallaleiðsögumaður meðfram því að læra textíl- og fatahönnun við Listaháskóla Íslands. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum hönnunarsýningum á Íslandi og erlendis og verk eftir hana hafa verið birt í virtum prjónatímaritum svo og bókum. Hún rekur vefsíðuna prjónakerling.is og bíður einnig upp á spennandi göngu- og prjónaferðir fyrir erlent jafnt sem íslenskt prjónafólk. Ferðirnar eru óviðjafnanlegt tækifæri til þStærð: ein stærð. Hægt er að fá fleiri stærðir með því að skipta um prjónastærð (2,25 til 3,25 mm eru hæfilegar prjónastærðir) og einnig er hægt að aðlaga lengdina með því að bæta við eða taka úr umf á milli munsturbanda.ess að kynnast ólíkum prjónaaðferðumí hópi fólks frá mismunandi löndum þar sem prjónið verður aðal tungumálið!
Prjónfesta: 10×10 cm = 30 L og 34 umf með tvíbandaprjóni á prjón 3 mm.
Garn: Grýla Tvíband frá Hélène Magnússon, 100% ný ull, 100% íslensk ull, fínt band, tvinnað, 25 g / hespa = u.þ.b. 112 m
- Aðallitur: hvítur, 1 hespa (74 m notaðir)
- Aukalitur 1: svartur, 1 hespa (59 m notaðir)
- Aukalitur 2: kerfilgrænn, 1 hespa (8 m notaðir)
- Aukalitur 2: rauður, 1 hespa (17 m notaðir)
Samtals notað af garni: 157 m
Prjónar: 3 mm hringprjónar (notað er Töfralykkju-aðferðin) eða sokkaprjónar. Sannreynið prjónfestu og skiptið um prjónastærð ef þörf krefur.
Annað: merki, nál
Aðferð: prjónað í hring, tvíbandprjón
Uppskrift: hún kemur sem PDF niðurhal en er ekki send í pósti.
Errata: engan villu fannst.