Lopi Affection er vanabindandi fyrir alla sem hafa gaman af að prjóna úr lopa. Þessi peysa, sem hæfir báðum kynjum er í 11 stærðum, frá XXS til 5-6X, þannig að hún hentar jafnt táningum sem fullorðnum. Í uppskriftinni er hægt að velja aðsniðið mitti, til að gera peysuna kvenlegri.
Mér finnst gaman að þróa nýjar hugmyndir til að móta snið lopapeysunnar. Undanfarin ár hef ég til dæmis nota stuttar umferðir mikið til að móta hálsmál, en á hefðbundinni lopapeysu er enginn munur á fram- og bakhlið. Á Lopi Affection eru stuttu umferðirnar stór hluti af hönnuninni sjálfri. Litríkar rendurnar kallast á við peysu sem var mjög vinsæl á fimmta áratugnum, löngu áður en lopapeysan varð heimsfræg. Lopi Affection kinkar líka kolli til finnska hönnuðarins Veera Välimäki.
Rendurnar eru myndaðar með því að prjóna stuttu umferðirnar með því sem ég kalla vafinn uppáslátt (“wrapped yo”) og uppáslátt með munsturlit, sem er aðferð sem ég bjó til sérstaklega fyrir þessa hönnun. Það er auðvelt að læra aðferðirnar með leiðbeiningunum mínum “Swatch”, peysuprufunni sem verður að fallegu penna- eða gleraugnaveski. Hún er ekki aðeins gagnleg til að athuga prjónafestuna, heldur einnig til að velja á milli allra 58 léttlopalitanna sem í boði eru (frá Ístex og einnig sérlitaðir fyrir Handprjónasambandið.) Góða skemmtun, ást og friður!
Hönnun: Hélène Magnússon
Stærðir: XXS,XS(S,M,L)1X,2X,3X(4X,5X,6X), fyrir konur og menn með aðsniðnu mitti fyrir konur. Stærð M kvenstærð = stærð S karlmannsstærð.
Tilbúin mál:
- Yfirvídd: A = 75.5,78(80,86.5,89)91,98,100(106.5,109,115,5)cm
- Mitti dömu B = 66.5,69(71,78,80)82,89,91(98,100,106)cm
- Lengd bols að handvegi a-c =
- 36,37.5(39,40,41)42.5,44,45(46,47.5,49)cm
- Lengd bols að mitti: a-b = 22,23(24,25.5,26.5)28,29,30.5(31.5,33,34)
- Lengd berustykkis að framan c-e = 16,16(17,17,18)18,19,19(19.5,19.5,20.5)
- Lengd gardaprj randa á framan: d-e = 8,5 cm /3,25”
- Lengd berustykkis á baki : c-f = 23,23(24,24,24.5)24.5,25.5,25.5(26,26,27)cm
- Lengd gardaprj randa á baki: d-f =15 cm/6”
- Ermalengd að handvegi: C =
- 45,46(47,48,49)50,51,52(53,54,55) cm
- úlnliður: D = 19,20(21,22,23)24.5,25.5,26.5(28,29,30)
- Efri ermi: E = 29,30(31,32,33)34.5,35.5,36.5(38,39,40) cm
Peysuna má nota mismunandi víða. Allt frá því að vera 5-10 cm víðari en eigið brjóstmál til þess að vera heldur þrengri en eigið brjóstmál, eftir því sem óskað er. Svarta peysan á myndinni er í stærð XS á 13 ára dreng, hún er 10cm víðari en eigið brjóstmál/ á konunni er hún aðsniðin og þrengri en eigið brjóstmál (90 cm). Gráa peysan er sýnd í stærð M, á konu með brjóstmál 90 cm.
aðallitur/aukalitur 1/aukalitur 2:
- svört peysa # 0005/0051/9264;
- gráa peysa #0054/1411/skærbleikt sérlitað fyrir Handprjónasamband Íslands. Líka til sölu á prjonakerling.com
Annað: rennilás eða tölur
Prjónar: hringprjónar nr 4,5. Töfralykkju-aðferðin (e. Magic Loop) er notuð til að prjóna ermar og háls en einnig má nota sokkaprjóna.
Annað: prjónamerki, stoppunál, 4 geymslunálar.
Prjónfesta: 10 x10 cm = 18 L og 24 umf í sléttu prjóni á prjón nr 4,5. Skiptið um prjónastærð ef þarf, til að ná réttri prjónafestu.
Aðferð: bolur og ermar eru prjónuð slétt í hring. Mittið er mótað með úrtökum og útaukningum. Við handveg eru lykkjur af ermum og bol sameinaðar á einn prjón og axlastykkið er prjónað fram og til baka med garðaprjóni. Lykkjur í handvegi eru settar á geymslunál eða hjálparband og síðan lykkjaðar saman.
Styttar umferðir eru prjónaðar með því að slá bandinu upp á prjóninn og prjóna til baka á röngunni hluta af umferðinni.
Uppskrift: hún kemur sem PDF niðurhal en er ekki send í pósti.
Errata: engan villu fannst.