Mosi
FRÁ ISK600
Mosi vettlingarnir, í sínum hlýlegu litum, eru fersk og nútímaleg útgáfa af tvíbandavettlingum. Þeir eru prjónaðir með íslensku Grýlu Tvíbandi í fallegu mosa litum. Uppskrift eftir Hélène Magnússon
Garn: Grýla Tvíband frá Hélène Magnússon
KIT til sölu hér
PDF uppskrift
Orders ship from France (VAT from your country, no Customs fees in Europe) / Commandes expédiées depuis la France (TVA de votre pays, pas de frais de douane en Europe)
GrýlaTvíband er fallegt og fíngert band úr hreinni íslenskri ull, þróað af Hélène Magnússon. Tvíbandið er spunnið úr sérvalinni hágæða íslenskri ull í verksmiðju á Ítalíu.
Grýla Tvíband er mjög sterkt, en þó sérlega létt og hlýtt, og nýtist einstaklega vel til dæmis í fíngerðum vettlingum. Eftir þvott mýkist ullin og fær að njóta sín til fulls.
Um hönnuðinn
Hélène Magnússon finnst gaman að bregða á leik með íslenskar prjónahefðir. Hún vann árum saman sem fjallaleiðsögumaður meðfram því að læra textíl- og fatahönnun við Listaháskóla Íslands. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum hönnunarsýningum á Íslandi og erlendis og verk eftir hana hafa verið birt í virtum prjónatímaritum svo og bókum. Hún rekur vefsíðuna prjónakerling.is og bíður einnig upp á spennandi göngu- og prjónaferðir fyrir erlent jafnt sem íslenskt prjónafólk. Ferðirnar eru óviðjafnanlegt tækifæri til þess að kynnast ólíkum prjónaaðferðumí hópi fólks frá mismunandi löndum þar sem prjónið verður aðal tungumálið!
Stærð: ein stærð. Hægt er að fá fleiri stærðir með því að skipta um prjónastærð (2,25 til 3,25 mm eru hæfilegar prjónastærðir).
Garn: Grýla Tvíband frá Hélène Magnússon, 100% ný ull, 100% íslensk ull, fínt band, tvinnað, 25 g / hespa = u.þ.b. 112 m
- Aðallitur: mosagrænn, 1 hespa (64 m notaðir)
- Aukalitur 1: svartur, 1 hespa (45 m notaðir)
- Aukalitur 2: kerfilgrænn, 1 hespa (61 m notaðir)
Samtals notað af garni: 170 m
Prjónar: 2,5 mm og 3 mm hringprjónar (notað er Töfralykkju-aðferðin) eða sokkaprjónar. Sannreynið prjónfestu og skiptið um prjónastærð ef þörf krefur.
Annað: merki, nál
Aðferð: prjónað í hring, tvíbandprjón
Uppskrift: hún kemur sem PDF niðurhal en er ekki send í pósti.
Errata: engan villu fannst.
Túngumál | á dönsku, á ensku, á frönsku, á íslensku |
---|