íslenskir vettlingar & Litir náttúrunnar
Það eru margar mismunandi gerðir af vettlingum á Íslandi, sumar einkennandi fyrir ákveðin svæði á landinu eða jafnvel sumar fjölskyldur. Vestfirskir laufaviðarvettlingar þekkjast strax á litríkum laufaviðarmunstrum í úlnliðinum og minni munstrum á hendi og þumli. Þeir voru sparivettlingar prjónaðir með afar fíngerðu heimaspunnu tvíbandi.
Vettlingarnir eru prjónaðir í hring með Grýlu Tvíbandi og mótaðir með úrtökum. Merkt er fyrir þumli með aukabandi og síðan er hann einnig prjónaður í hring. Vettlingarnir eru frekar langir til að veita hlýju á úlnliðunum.
Um hönnuðinn
Hélène Magnússon finnst gaman að bregða á leik með íslenskar prjónahefðir. Hún vann árum saman sem fjallaleiðsögumaður meðfram því að læra textíl- og fatahönnun við Listaháskóla Íslands. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum hönnunarsýningum á Íslandi og erlendis og verk eftir hana hafa verið birt í virtum prjónatímaritum svo og bókum. Hún rekur vefsíðuna prjónakerling.is og bíður einnig upp á spennandi göngu- og prjónaferðir fyrir erlent jafnt sem íslenskt prjónafólk. Ferðirnar eru óviðjafnanlegt tækifæri til þess að kynnast ólíkum prjónaaðferðumí hópi fólks frá mismunandi löndum þar sem prjónið verður aðal tungumálið!
Stærð: ein stærð. Hægt er að fá fleiri stærðir með því að skipta um prjónastærð (2,25 til 3,25 mm eru hæfilegar prjónastærðir) og einnig er hægt að aðlaga lengdina með því að bæta við eða taka úr umf á milli munsturbanda.
WestfjordmitsSchematics
Prjónfesta: 10×10 cm = 30 L og 34 umf með tvíbandaprjóni á prjón 3 mm.
Garn: Grýla og Gilitrutt Tvíband frá Hélène Magnússon, 100% ný ull, 100% íslensk ull, fínt band, tvinnað, 25 g / hespa = u.þ.b. 112 m
Aðallitur: hvítur, 1 hespa (74 m notaðir), Gilitrutt
Aukalitur 1: svartur, 1 hespa (59 m notaðir), Gilitrutt
Aukalitur 2: kerfilgrænn, 1 hespa (8 m notaðir), Grýla
Aukalitur 2: rauður, 1 hespa (17 m notaðir), Grýla
Samtals notað af garni: 157 m
Prjónar: 3 mm hringprjónar (notað er Töfralykkju-aðferðin) eða sokkaprjónar. Sannreynið prjónfestu og skiptið um prjónastærð ef þörf krefur.
Annað: merki, nál
Aðferð: prjónað í hring, tvíbandprjón
Kit: Pakkinn inniheldur garnið en ekki prjóna eða önnur áhöld. Pakkin inniheldur ekki heldur uppskriftin sem þarf að kaupa sér. Sendingarkostnaður er ekki innifalinn í verði.
Sending: sjá hér