Lopi Magic

FRÁ ISK1.050

Með þessari uppskrift langaði mig að sýna einstaka eiginleika íslenska lopans. Hann er fullur af lofti, lagar sig að þeim prjónum sem eru notaðir og kemur alltaf fallega út: ef prjónað er þétt helst lopinn þannig, ef prjónað er laust þenst hann út og fyllir upp í öll göt.

Lopi er sannarlega töfragarn! Peysurnar þrjár sem sýndar eru hér líta við fyrstu sýn nákvæmlega eins út (fyrir utan ermarnar) og eru allar prjónaðar með sömu prjónfestu og prjónastærð. En þegar komið er við þær verður ljóst hversu ólíkar þær eru í áferð og þyngd: Álafosslopapeysan er þykk og þung, Léttlopapeysan er aðeins lausari en venjan er og peysan með blöndu af plötulopa og Love Story er einstaklega létt og mjúk.
Peysan er víð í sniðinu og lengri að aftan. Hún er prjónuð neðan frá og upp, en ermarnar ofan frá og niður og þrjár gerðir erma eru í boði. Stuttar umferðir, sem fléttaðar eru inn í munstrið, hækka hálsmálið að aftan.

Garn notað: annað hvort 1 þráður af plötulopa+Love Story eða Léttlopi eða Álafosslopi

 

PDF uppskrift (á íslensku, ensku eða frönsku)
lika til á Ravelry

> Meiri upplýsingar neðar

Prjonakerling - Hélène Magnússon