Hönnun: Hélène Magnússon
Ég var að leggja lokahönd á uppskrift Rollupeysunnar minnar, lopapeysu skreytta auðþekkjanlegum íslenskum sauðkindum um axlastykkið (sem hefur nú verið birt), þegar Caitlin Hunter frá Boyland knitworks gaf út Ovis peysuna, alþakin kindum (ekki íslenskum).
Ég hreifst svo af henni að ég keypti samstundis uppskrifina og ætlaði að prjóna handa sjálfri mér en gat síðan ekki annað en búið til mína eigin íslensku útgáfu síðasta haust. Ég sýndi Caitlin hana sem hvatti mig til þess að gefa út uppskrift… og hér er hún! Íslenska Ovis peysan, stutt lopapeysa prjónuð að ofan.
Ég verð að viðurkenna að það var smá bras að fá kindamunstrið til þess að passa í kringum axlastykkið og halda svo áfram ótruflað niður bolinn og ermarnar í svo mörgum stærðum. En hún er hér fánaleg í stærðum XXS til 5XL.
Til aukinna þæginda eru munsturteikningarnar einnig gefnar upp í öfugri litasamsetningu.
Leiðbeiningar eru fyrir bæði hefðbundna peysu og opna peysu þar sem þið biðjið mig oftast um það. Ég vona að ykkur líki þær!
Stærðir: XXS(XS,S,M)L,XL,2X(3XL,4XL,5XL)
Ráðlögð stærð: 15-20 cm laus um brjóstkassa og 10-15 cm laus um upphandleggi. Bætið óskuðum lausleika við eigin mál og veljið stærðina sem er næst. Berið önnur tilbúin mál við ykkar eigin.
Opna peysan á myndunum er í Stærð S: hún er prjónuð með Heiður bandinu frá Urðurull í sauðasvörtum og jurtalituðum Léttlopa frá Hespu. Peysan er í Stærð M og prjónuð úr blöndu af plötulopa og Love Story.
Tilbúin mál
- A Hálsmál: 43(45.5,45.5,48)48,50,50(52,52,52) cm
- B Brjóstkassi: 85.5(95,104.5,114)124,133,142(151.5,161,170.5) cm
- C Upphandleggur: 38(38,38,38)48,48,56.5(56.5,56.5,66) cm
- D Lengd bols að handvegi: 29 cm
- E Lengd ermar: 37 cm
- F Lengd axlastykkis að framan: 21(22,23,24)24.5,25.5,26(27,28,29) cm
Prjónfesta: 10 cm = 18 L og 24 umf með sléttu prjóni á prjóna nr 4,5. Skiptið um prjónastærð ef þörf er á til þess að ná prjónfestu.
GARN NOTAÐ
Garn af aran þyngd sem hentar í tvíbandaprjón, eins og Léttlopi frá Ístex, 100% ný ull, léttspunnin, 50g dokka = 100 m
- Aðallitur: 5(5,5,6)6,7,7(8,8,9) dokkur
- Aukalitur: 6(6,7,7)8,9,9(10,11,11) dokkur (nægir í hnappagötin á opinni peysu)
Fyrir mýkri og næstum helmingi léttari peysu er einnig hægt að nota uppáhalds blönduna mína af plötulopa og Love Story: 1 band af hvoru haldið saman.
Plötulopi frá Ístex: 100% ný ull, óspunnin, 100-110g plata = 300 m
+ Love Story Einband frá Hélène Magnússon, 100% ný ull, hrein íslensk lambsull, afar fíngert einband, 25g dokka = 225 m
- Aðallitur: 2(2,2,2)2,3,3(3,3,3) plötur af plötulopa og 3(3,3,3)3,4,4(4,4,4) dokkur af Love Story
- Aukalitur: 2(2,3,3)3,3,3(4,4,4) plötur af plötulopa og 3(3,4,4)4,4,4(5,5,6) dokkur af Love Story
Metratal notað (áætlað)
Opin Peysa
- Aðallitur: 394(405,428,462)520,573,608(655,672,752) m
- Aukalitur: 498(513,542,585)659,726,770(829,851,952) m
Peysa
- Aðallitur: eins og fyrir opna peysu
- Aukalitur: 450(464,492,534)608,673,717(775,796,896) m
ÁHÖLD
Prjónar: hringprjónar nr 4 og 4.5, 80 cm á lengd eða af þeirri stærð sem þarf til þess að ná prjónfestu. Töfralykkju-aðferðin (e. Magic Loop) er notuð en einnig má nota sokkaprjóna eða aðrar aðferðir til þess að prjóna í hring.
Annað: stoppunál, prjónamerki, geymslunálar.
Fyrir opna peysu: saumavél eða nál og tvinni til þess að klippa í, 8 eða 9 hnappar og borði tvisvar sinnum lengri en opið að framan.
Aðferð: prjónað í hring, tvíbandprjón, Lykkjustigaprjón ef vilt, klippa í
Uppskrift: hún kemur sem PDF niðurhal með tölvupostien er ekki send í pósti. Þú finnur hana einnig alltaf í reikningunni þinni undir Niðurhal.
Errata: engan villu fannst.



















